Þá er komið á launakönnun 2022!
Þetta er fimmta árið í röð sendum við nú út launakönnun til félagsmanna um kjör þeirra og til þess að kanna hug þeirra til félagsins og þeirri vinnu sem á að eiga sér stað þar. Við biðjum þig að taka þátt í könnuninni þar sem hvert svar er mikilvægt og til að niðurstöður könnunarinnar endurspegli vilja félaganna sem best. Unnið verður úr könnunni og niðurstöður hennar sendar til þeirra félaga sem greitt hafa árgjaldið.
Félagsmenn sem greiddu árgjaldið annaðhvort 2020 eða 2021 fengu árgjaldið 2022 niðurfellt skv. samþykkt á aðalfundi og fá einnig sendar til sín niðurstöður könnuninnar.